Hvalir, segl og vísindi

Öðlastu dýpri innsýn í lífið neðansjávar í þessari mögnuðu siglingu um Skjálfandaflóa sem samanstendur af bæði einstakri náttúruskoðun og rannsóknum á lífríki sjávar.

Stígðu skrefið með okkur í átt að verndun sjávar og lífríki þess í þessari einstöku 3,5 klukkustunda skútusiglingu um Skjálfandaflóa sem samanstendur af rannsóknum og fræðslu og auðvitað…hvalaskoðun.

Hnúfubakur © Nick Bondarev
Hnúfubakur © Nick Bondarev

Hvalir og mikilvægi þeirra í vistkerfinu

Hvalir eru stórkostleg dýr sem gegna mikilvægu hlutverki í vistkerfi sjávar. Þeir dreifa næringarefnum um sjóinn og stuðla þannig að framleiðslu plöntusvifs, en plöntusvif framleiðir yfir helming súrefnis í heiminum. Með virðingu að leiðarljósi siglum við á hvalaslóðir og skyggnumst í heim þessara tignarlegu dýra.

Lært að sigla © Ása Steinars
Lært að sigla © Ása Steinars

Umhverfisvænn ferðamáti

Að ferðast um á eikarskútum er hinn fullkomni ferðamáti en það er fátt sem jafnast á við að svífa um flóann seglum þöndum. Á siglingu þinni um flóann muntu fræðast um þennan gamla ferðamáta og færð svo einstakt tækifæri til að aðstoða áhöfnina við að hífa upp seglin.

Undir smásjánni © Ása Steinars
Undir smásjánni © Ása Steinars

Taktu þátt í neðansjávarrannsóknum með sjávarlíffræðingum

Það sem gerir þessa ferð frábrugðna öðrum hefðbundnum hvalaskoðunarferðum er að nú færð þú tækifæri til að taka beinan þátt í neðansjávarrannsóknum, undir handleiðslu sjávarlíffræðinga frá Ocean Missions. Á meðan á siglingunni stendur munum við notast við sérhannað troll (e. manta trawl) sem gerir okkur kleift að safna saman sýnum úr flóanum sem eru svo vandlega skoðuð og greind með hjálp smásjár. Tilgangurinn er að áætla magn örplastsagna í sjónum og skoða samhengi þeirra og áhrif á svifdýr og hvalagengd. Að auki munum við ræða um hugsanlegar utanaðkomandi ógnir við lífríki sjávar og hvernig sporna megi við þeim.

Beint framlag til hafrannsókna og sjálfbærniverkefna á svæðinu

Með því að slást með í för í þessa ferð renna 15% af miðaverði þínu til Ocean Missions, nýstofnaðra umhverfissamtaka á Húsavík. Ocean Missions vinnur hörðum höndum að verndun hafsins með rannsóknarvinnu og fræðslu, bæði innanbæjar, sem utan. Þitt framlag hefur því mikið að segja.

Fræðsla um borð © Ása Steinars
Fræðsla um borð © Ása Steinars

Taktu þátt!

Norðursigling og Ocean Missions hafa sameinað krafta sína með það að markmiði að hvetja fólk til þess að fræðast um lífið neðansjávar og þær ógnir sem að hafinu steðja. Með vísindi og  fræðslu að vopni viljum við vekja fólk til umhugsunar og í leiðinni stuðla að verndun hafsins.

Þú getur lesið meira um samstarf Norðursiglingar og Ocean Missions hér.
Fyrir frekar upplýsingar um Ocean Missions, smellið hér.

* Hámark 25 farþegar
** Við ábyrgjumst ekki að hvalir sjáist í ferðunum
*** Í öllum okkar skútuferðum þarf að notast við vélarafl bátanna þar sem við getum ekki treyst á að veður og vindar séu okkur hliðhollir. Við munum þó nýta hvert tækifæri til að stöðva vélina og sigla eingöngu undir seglum.

Bóka ferð

Vertu með þeim fyrstu að taka þátt í þessari einstöku rannsóknarferð!

TAKMARKAÐUR SÆTAFJÖLDI*

Brottfarir næsta sumar:

  • 1. júní – 31. júlí á skonnortunni Hildi
  • 1.–31. ágúst á hefðbundnum eikarbát

3,5 klukkustundir

Alla fimmtudaga kl. 15:00

Júní, júlí og ágúst

Húsavík

Verð

14.490 kr. fullorðnir
7.000 kr. 7-15 years
FRÍTT fyrir 6 ára og yngri

(Öll verð eru með 11% virðisaukaskatti)

Innifalið

Afþreying um borð

  • Hvalaskoðun**
  • Manta trawling
  • Siglt seglum þöndum***
  • Örplastrannsóknir

Hressing um borð

  • Heitt kakó og kanilsnúðar

Leiðsögn

  • Sérþjálfaður hvalaleiðsögumaður.
  • Sérfræðingur í sjávarlíffræði.

Auka fatnaður

  • Hlýir heilgallar og regnkápur ef þarf.

Brottfararspjald veitir eftirfarandi afslætti